Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 06. nóvember 2022 11:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Chelsea og Arsenal: Aubameyang byrjar
Mynd: Getty Images

Byrjunarliðin í sórleiknum á Brúnni eru komin í hús. Pierre-Emerick Aubameyang byrjar gegn sínum gömlu félögum.


Hann er ásamt Kai Havertz og Raheem Sterling í fremstu víglínu. Trevoh Chaloba og Thiago Silva eru saman í miðverðinum. Þá er Benjamin Mendy mættur aftur á milli stangana þar sem Kepa er meiddur.

Oleksandr Zinchenko snýr aftur í lið Arsenal en hann kemur inn í liðið á kostnað Kieran Tierney hetju liðsins frá því í leiknum gegn Zenit í vikunni.

Takehiro Tomiyasu kom inn á sem varamaður í þeim leik en hann þurfti að fara aftur af velli. Hann er ekki klár í slaginn og er því Ben White áfram í bakverðinum.

Chelsea: Mendy; Azpilicueta, Chalobah, Silva, Cucurella; Loftus-Cheek, Jorginho, Mount; Havertz, Aubameyang, Sterling.

Varamenn: Bettinelli, Kovacic, Pulisic, Broja, Zakaria, Ziyech, Gallagher, Koulibaly, Hall.

Arsenal: Ramsdale; White, Saliba, Gabriel, Zinchenko; Partey, Xhaka, Odegaard; Saka, Jesus, Martinelli

Varamenn: Turner, Tierney, Nketiah, Holding, Cedric, Vieira, Lokonga, Nelson, Elneny


Athugasemdir
banner
banner
banner