Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 06. nóvember 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Calvert-Lewin enn og aftur á meiðslalistanum
Mynd: EPA

Dominic Calvert-Lewin framherji Everton hefur verið ansi óheppinn með meiðsli undanfarið en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla í leik Everton gegn Leicester í gær.


Frank Lampard stjóri liðsins segir að um meiðsli aftan í læri sé að ræða. Hann fari í myndatöku eftir helgi en Lampard telur þetta ekki alvarlegt.

Calvert-Lewin er í kapphlaupi við tímann um að vinna sér sæti í enska landsliðshópnum fyrir HM en það verður að teljast ansi ólíklegt eftir enn eitt áfallið.

Hann var frá í fjóra mánuði á síðustu leiktíð og missti af fyrsta mánuðinum á þessari leiktíð eftir að hafa meiðst á undirbúningstímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner