Manchester United tapaði gegn Aston Villa 3-1 í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu.
Cristiano Ronaldo var fyrirliði liðsins í leiknum en það hefur verið mikið í umræðunni vegna þess að hann var tekinn út úr liðinu fyrir stuttu vegna hegðunar sinnar.
Ronaldo og Tyrone Mings varnarmaður Aston Villa lentu í smá glímu í teig Aston Villa í síðari hálfleik. Ronaldo var ekki ánægður með varnartilburði Mings þegar sá síðarnefndi hélt í hann.
Ronaldo tók á það ráð að snúa Mings niður. Anthony Taylor leysti málið með því að gefa báðum gult spjald. Atvikið var skoðað í VAR en upprunalega dómnum var ekki breytt.
Athugasemdir