Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 06. nóvember 2022 18:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Thiago: Berum ekki ábyrgð á skoðunum annarra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thiago Alcantara miðjumaður Liverpool var til viðtals hjá Tómasi Þór Þórðarsyni, Eiði Smára og Bjarna Þór í Vellinum eftir sigur liðsins gegn Tottenham í kvöld.


Liverpool hefur verið langt frá sínu besta á þessari leiktíð og miðja liðsins hefur verið mikið gagnrýnt. Thiago var spurður hvernig leikmennirnir tækla það.

„Ég ber virðingu fyrir öllum skoðunum, við berum ekki ábyrgð á þeim við viljum bara spila fótbolta. Við viljum vinna leiki og sem íþróttamenn gerum við allt til þess, við verðum bara að bera virðingu fyrir skoðunum annarra og einbeita okkur að okkur sjálfum," sagði Thiago.

Eftir sigurinn er Liverpool í 8. sæti, fjórum stigum frá Evrópusæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner