Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 06. nóvember 2022 12:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Trent verður að vera í byrjunarliði Englands - „Ég elska hann"
Mynd: EPA

Trent Alexander-Arnold hefur verið mikið gagnrýndur fyrir varnarleik sinn á tímabilinu. Nú þegar Reece James er meiddur er hægri bakvarðarstaðan óráðin hjá enska landsliðinu fyrir HM.


MIcah Richards sérfræðingur hjá Sky Sports vill sjá Trent í byrjunarliðinu á HM.

„Hann er í uppáhaldi hjá mér, ég elska hann. Hann hefur auðvitað farið í gegnum erfitt tímabil hjá Liverpool en hann er sturlaður fram á við. Ég spilaði hægri bakvörð og það er magnað sem þessir strákar eru að gera í dag. Dagarnir eru liðnir sem bakverðir reyna að verjast vel og fara fram þegar tækifæri gefst," sagði Richards.

„Þeir fara fram og það er búist við því að þeir búi til færi eins og vængmenn. Hann á ekki aðeins að vera í hópnum, hann verður að spila. Landsleikjabolti er hægari en úrvalsdeildarboltinn, ég held að það hjálpi honum í varnarleiknum."

Richards telur einnig að leikstíll Englands henti Trent betur varnarlega séð.


Athugasemdir
banner
banner
banner