Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 06. nóvember 2022 17:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vlahovic ekki í leikmannahópi Juventus gegn Inter
Mynd: Getty Images

Dusan Vlahovic framherji Juventus er ekki í leikmannahópi liðsins sem tekur á móti Inter í ítölsku deildinni í kvöld.


Juventus er í miklum vandræðum í deildinni en liðið er í 8. sæti. Liðið fer upp fyrir Inter með sigri í kvöld.

Massimo Allegri greindi frá því í gær að það væri ólíklegt að Vlahovic myndi taka þátt í leiknum og nú hefur félagið gefið út hverjir verði í hópnum í kvöld og Vlahovic er ekki þar.

Federico Chiesa er hins vegar í hópnum en hann spilaði sinn fyrsta leik í tíu mánuði gegn PSG í vikunni.


Athugasemdir
banner