Rico Lewis, 17 ára gamall bakvörður Manchester City hefur komið við sögu í sex leikjum hjá City á þessari leiktíð.
Hann var í byrjunarliðinu þegar City lagði Chelsea í deildabikarnum í gær. Pep Guardiola stjóri liðsins var í skýjunum með frammistöðu drengsins.
„Hann er stórkostlegur, hann er 17 ára og átti fullkominn leik gegn Chelsea. Framtíðin er björt hjá honum, ég hef mikla trú á honum," sagði Guardiola.
Fabrizio Romano greinir frá því að City sé að undirbúa viðræður við Lewis um langtíma samning.
Athugasemdir