Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. nóvember 2022 22:48
Brynjar Ingi Erluson
Grétar og Conte sælir og glaðir í faðmlögum
Mynd: Getty Images
Antonio Conte og Grétar Rafn Steinsson fögnuðu vel og innilega er Tottenham tryggði sig áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Pierre Emile Hojbjerg skoraði sigurmark Tottenham seint í uppbótartíma og tryggði það efsta sæti D-riðils.

Conte var í banni eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik og var því upp í stúku.

Við hlið hans var fyrrum landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson, en hann er í stóru hlutverki í stjórn Tottenham. Hann vinnur náið með aðal- og ungliði félagsins ásamt því að koma að fótboltavísindum og leikmannamálum.

Þeir félagarnir föðmuðust þegar það var ljóst að Tottenham var á leið áfram og var birt myndband af því á samfélagsmiðlum en það má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner