Það helsta úr slúðurheimum - Robinson efstur á óskalista Liverpool - Mateta eftirsóttur
   sun 06. apríl 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England í dag - Borgarslagur á Old Trafford
Mynd: EPA
Fjórir leikir fara fram í 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Síðasti leikur dagsins er borgarslagur í Manchester þar sem Man Utd fær Man City í heimsókn á Old Trafford.

Tímabilið hefur verið vonbrigði hjá báðum liðum en Man Utd situr í 13. sæti eftir tap gegn Nottingham Forest í síðustu umferð. Man City lagði Leicester í síðustu umferð en hefur unnið tvo af síðustu fimm leikjum sínum og getur komist upp í 4. sæti með sigri í dag.

Liverpool getur náð 14 stiga forystu á Arsenal í titilbaráttunni með sigri á Fulham á Craven Cottage. Chelsea getur haldið City fyrir neðan sig með sigri á Brentford og þá mætast Tottenham og Southampton.

sunnudagur 6. apríl
13:00 Brentford - Chelsea
13:00 Fulham - Liverpool
13:00 Tottenham - Southampton
15:30 Man Utd - Man City
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 31 22 7 2 72 30 +42 73
2 Arsenal 31 17 11 3 56 26 +30 62
3 Nott. Forest 31 17 6 8 51 37 +14 57
4 Chelsea 31 15 8 8 54 37 +17 53
5 Man City 31 15 7 9 57 40 +17 52
6 Aston Villa 31 14 9 8 46 46 0 51
7 Newcastle 29 15 5 9 49 39 +10 50
8 Fulham 31 13 9 9 47 42 +5 48
9 Brighton 31 12 11 8 49 47 +2 47
10 Bournemouth 31 12 9 10 51 40 +11 45
11 Crystal Palace 30 11 10 9 39 35 +4 43
12 Brentford 31 12 6 13 51 47 +4 42
13 Man Utd 31 10 8 13 37 41 -4 38
14 Tottenham 31 11 4 16 58 45 +13 37
15 Everton 31 7 14 10 33 38 -5 35
16 West Ham 31 9 8 14 35 52 -17 35
17 Wolves 31 9 5 17 43 59 -16 32
18 Ipswich Town 31 4 8 19 31 65 -34 20
19 Leicester 30 4 5 21 25 67 -42 17
20 Southampton 31 2 4 25 23 74 -51 10
Athugasemdir
banner