Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. nóvember 2022 11:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er Reus óheppnasti fótboltamaður í heimi?
Marco Reus.
Marco Reus.
Mynd: EPA
Marco Reus er mögulega óheppnasti fótboltamaður í heimi. Hann verður ekki með á HM í Katar vegna meiðsla.

Á síðustu tíu árum hefur Reus misst af fimm af sex stórmótum sem Þjóðverjar hafa leikið á.

Hann var með á HM 2018 í Rússlandi - þar sem Þjóðverjar féllu úr leik í riðlakeppninni - en hann hefur misst af öðrum mótum vegna meiðsla.

Hann var meðal annars fjarri góðu gamni þegar Þýskaland fór alla leið á HM 2014.

Núna verður hann ekki með á HM í Katar en liðsfélagi hans, hinn 17 ára gamli Youssoufa Moukoko kemur til með að vera þar.


Athugasemdir
banner
banner
banner