Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 09:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leipzig er að kaupa Xavi Simons - Bónusgreiðslur geta hækkað verðmiðann talsvert
Simons skoraði sitt fyrsta landslisðmark gegn Íslandi síðasta sumar.
Simons skoraði sitt fyrsta landslisðmark gegn Íslandi síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
RB Leipzig er að ganga frá kaupum á Xavi Simons frá PSG en hollenski vængmaðurinn er á láni hjá þýska félaginu út tímabilið. Hann getur einnig leikið sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Það eru þýskir miðlar sem greina frá og er sagt að kaupverðið sé 50 milljónir evra plús bónusgreiðslur. Kaupin eru nánast frágengin.

Ef allar kröfur verða uppfylltar geta bónusgreiðslurnar hækkaðverðmiðann upp í 80 milljónir evra.

Simons er 21 árs og er á sínu öðru tímabili á láni hjá Leipzig. Hann er uppalinn hjá Barcelona og PSG en hefur einnig veri á mála hjá PSV á sínum ferli.

Simons á að baki 24 landsleiki og í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Hann var í liði ársins í þýsku deildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner