Tíundu umferð 3. deildar karla lauk í kvöld með fimm leikjum en Kári frá Akranesi er með tveggja stiga forystu á toppnum eftir umferðina.
Kári vann öflugt lið Augnabliks, 5-2, í Fífunni. Leikurinn var gríðarlega spennandi þar sem liðin skiptust á að taka forystuna en á lokakafla leiksins skoruðu Káramenn þrjú mörk.
Augnablik spilaði manni færri síðasta hálftímann eftir að Breki Barkarson var rekinn af velli. Kári er á toppnum með 23 stig, tveimur meira en Víðir sem vann Magna 1-0 þökk sé marki Markúsar Mána Jónssonar.
Vængir Júpiters unnu Sindra, 1-0. Patrekur Viðar Jónsson gerði markið á 87. mínútu.
ÍH og Hvíti riddarinn gerðu 2-2 jafntefli í Skessunni. Hilmar Þór Sólbergsson tryggði Hvíta riddaranum stig með jöfnunarmarki undir lok leiks.
KFK vann þá góðan 3-1 sigur á KV í Vesturbænum. Hlynur Bjarnason skoraði tvívegis fyrir KFK sem vann annan leik sinn í röð.
Stöðutöfluna í deildinni má sjá hér fyrir neðan.
Úrslit og markaskorarar:
Sindri 0 - 1 Vængir Júpiters
0-1 Patrekur Viktor Jónsson ('87 )
Magni 0 - 1 Víðir
0-1 Markús Máni Jónsson ('2 )
Rautt spjald: Halldór Mar Einarsson , Magni ('90)
Augnablik 2 - 5 Kári
0-1 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('15 )
1-1 Arnar Laufdal Arnarsson ('26 )
2-1 Gabríel Þór Stefánsson ('30 )
2-2 Mikael Hrafn Helgason ('48 )
2-3 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('84 )
2-4 Axel Freyr Ívarsson ('90 )
2-5 Tómas Týr Tómasson ('90 )
Rautt spjald: Breki Barkarson , Augnablik ('60)
ÍH 2 - 2 Hvíti riddarinn
1-0 Kristófer Dan Þórðarson ('52 )
1-1 Hilmar Þór Sólbergsson ('68 )
2-1 Dagur Óli Grétarsson ('79 )
2-2 Hilmar Þór Sólbergsson ('87 )
KV 1 - 3 KFK
1-0 Gunnar Magnús Gunnarsson ('31 )
1-1 Hlynur Bjarnason ('33 )
1-2 Hlynur Bjarnason ('45 )
1-3 Hamdja Kamara ('76 )
3. deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Kári | 10 | 7 | 2 | 1 | 34 - 16 | +18 | 23 |
2. Víðir | 10 | 6 | 3 | 1 | 33 - 13 | +20 | 21 |
3. Árbær | 10 | 6 | 2 | 2 | 23 - 18 | +5 | 20 |
4. Augnablik | 10 | 6 | 0 | 4 | 25 - 16 | +9 | 18 |
5. Magni | 10 | 4 | 3 | 3 | 12 - 13 | -1 | 15 |
6. KFK | 10 | 5 | 0 | 5 | 21 - 24 | -3 | 15 |
7. Elliði | 10 | 4 | 1 | 5 | 16 - 25 | -9 | 13 |
8. ÍH | 10 | 3 | 2 | 5 | 25 - 29 | -4 | 11 |
9. Sindri | 10 | 3 | 1 | 6 | 19 - 20 | -1 | 10 |
10. Vængir Júpiters | 10 | 3 | 1 | 6 | 22 - 27 | -5 | 10 |
11. Hvíti riddarinn | 10 | 3 | 1 | 6 | 14 - 26 | -12 | 10 |
12. KV | 10 | 2 | 0 | 8 | 13 - 30 | -17 | 6 |
Athugasemdir