Guehi vill fara til Liverpool - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Kolo Muani til Newcastle?
   fös 14. október 2022 15:42
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik fer yfir í Nike
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Breiðablik hefur gert samning við Nike og gildir hann til fjögurra ára. Blikar skipta því úr Errea og yfir í Nike.

Öll lið á vegum knattspyrnudeildar Breiðabliks munu leika í fatnaði frá Nike næstu fjögur tímabil. Breiðablik spilaði síðast í Nike árið 2009 þegar liðið varð meðal annars bikarmeistari karla.

Eysteinn Pétur Lárusson Framkvæmdastjóri Breiðabliks er mjög sáttur við nýja samninginn eins og kemur fram í tilkynningu.

„Það að við höfum náð samkomulagi við Nike sem er eitt stærsta íþróttavörumerki heimi skiptir knattspyrnudeild Breiðabliks gríðarlega miklu máli. Nú munu allir iðkendur knattspyrnudeildar frá þeim minnstu og upp í meistaraflokk klæðast þessum vönduðu vörum. Þetta eru tæplega 2000 manns í heildina og verður gaman að sjá samstarfið þróast með Nike á Íslandi," segir Eysteinn meðal annars.


Athugasemdir
banner
banner
banner