Arsenal og Bayern berjast um Nico - Isak ætlar að ræða við Newcastle - Sane aftur til Englands?
   mán 17. október 2022 17:56
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo í tuttugasta sæti í kjörinu um Gullknöttinn
Mynd: EPA

Kjörið um Gullknöttinn ræðst í kvöld og er komið í ljós að portúgalska goðsögnin Cristiano Ronaldo endar í tuttugasta sæti, sem er hans versti árangur síðan hann var í 20. sæti árið 2005.


Harry Kane er í 21. sæti og Bernardo Silva í 22. sæti á eftir Ronaldo en leikmenn á borð við Sebastien Haller, Son Heung-min og Riyad Mahrez eru fyrir ofan Ronaldo.

Son er í ellefta sæti og nú styttist í að topp tíu listinn verði kynntur.

Búist er við að Karim Benzema og Robert Lewandowski berjist um efsta sætið en Sadio Mane, Kylian Mbappe, Thibaut Courtois, Lionel Messi og Kevin De Bruyne verða í næstu sætum þar fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner