Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. október 2022 17:30
Elvar Geir Magnússon
Aguerd mun spila með West Ham fyrir HM
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, segir að marokkóski vængmaðurinn Nayef Aguerd muni spila fyrir félagið áður en hlé verður gert á keppninni fyrir HM.

Aguerd er 26 ára og kom frá Rennes fyrir 30 milljónir punda í sumar. Hann meiddist hinsvegar illa á ökkla í leik á undirbúningstímabilinu og þurfti að gangast undir aðgerð.

„Það eru virkilega góðar fréttir að Nayef sé á leið til baka því hann var keyptur til að verða lykilmaður hjá okkur," segir Moyes.

„Hann er byrjaður að æfa að einhverju leyti. Ég held að hann muni klárlega spila áður en HM fer fram."

West Ham heimsækir Liverpool annað kvöld. Varnarmennirnir Kurt Zouma og Craig Dawson hafa verið að glíma við meiðsli og sóknarmaðurinn Maxwel Cornet er að snúa aftur af meiðslalistanum og mun byrja að æfa á ný í þessari viku.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner