Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. október 2022 20:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Birkir fyrirliði í stórsigri - Jón Daði skoraði gegn varaliði Leeds
Þekkir það að vera með fyrirliðabandið
Þekkir það að vera með fyrirliðabandið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson skoraði eitt mark í sigri Bolton gegn varaliði Leeds í kvöld.


Leiknum lauk með 3-0 sigri Bolton en Jón Daði sá til þess að liðið var með eins marks forystu þegar flautað var til hálfleiks. Jóni var skipt af velli snemma í síðari hálfleik.

Leikurinn fór fram í neðrideildabikarnum en Bolton er komið í 32 liða úrslit keppninnar.

Birkir Bjarnason bar fyrirliðabandið í öruggum sigri Adana Demirspor í tyrkneska bikarnum í kvöld.

Liðið mætti Adiyaman sem leikur í þriðju efstu deild en leiknum lauk með 5-0 sigri Adana. Liðið er því komið i 64 liða úrslit keppninnar.

Atli Barkarson er loksins kominn á fulla ferð eftir meiðsli en hann spilaði allan leikinn í 4-1 sigri Sonderjyske gegn Koge í bikarnum. Hann lagði upp fyrsta mark liðsins.

Liðið er því komið í 16 liða úrslit bikarsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner