þri 18. október 2022 22:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi ánægður með spilamennskuna
Mynd: EPA

Roberto De Zerbi stjóri Brighton leitar enn af sínum fyrsta sigri en hann hefur gert tvö jafntefli og tapað tveimur leikjum síðan hann tók við liðinu af Graham Potter.


Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Nottingham Forest í kvöld en De Zerbi var ánægður með liðið.

„Við spiluðum vel. Ég vil ekki segja að þetta hafi verið ósanngjarnt eða við óheppnir. Ég naut þess að horfa á þennan leik en úrslitin eru svekkjandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn, einnig gegn TOttenha, Brentford og svo í dag. Ég þakka leikmönnunum mínum fyrir því þeir spiluðu frábærlega," sagði De Zerbi.

Hann viðurkennir þó að það þurfi að bæta sóknarleik liðsins.

„Við þurfum að finna bestu lausnina, Við erum að læra það hvernig á að sækja þegar maður hefur lítið pláss," sagði De Zerbi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner