West Ham heimsækir Liverpool á Anfield á morgun.
Liverpool hóf tímabilið afar illa en hefur náð í frábær úrslit í síðustu tveimur leikjum. 7-1 sigur á Rangers og sigur á Manchester City um helgina.
„Ég vona að síðustu tvö úrslit hjá Liverpool gegn Rangers og Man City sé ekki að fara snúa genginu við," sagði David Moyes stjóri West Ham í léttu gríni.
„Enginn heldur að Liverppol verði í neðri hlutanum, allir eru meðvitaðir um að þeir verða við toppinn. Liverpool er mjög gott lið. Ég vil meina að það séu líkindi með Liverpool og West Ham að því leitinu til að við byrjuðum hægt eins og þeir."
Moyes er bjartsýnn fyrir hönd beggja liða að það séu bjartir tímar framundan.
Athugasemdir