Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. október 2022 19:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Osimhen ætlar að vera hjá Napoli næstu árin
Mynd: Getty Images

Victor Osimhen framherji Napoli er ekki á förum frá félaginu á næstunni ef marka má orð umboðsmanns hans.


Manchester United var í leit af framherja í sumar og nafn Osimhen kom oft upp í umræðunni en umboðsmaðurinn hans segir að leikmaðurinn hafi aldrei verið á faraldsfæti.

„Við urðum ekki varir við áhuga frá mörgum liðum. Það var ljóst snemma í sumar að það voru að koma fréttir frá aðilum sem höfðu aðra hagsmuni að gæta. En ég, Osihmen og Napoli vorum með mjög augljósar hugmyndir."

Hann segir að Osimhen hafi viljað vera áfram til að spila í Meistaradeildinni.

„Það er nákvæmlega það sem hann vildi, að eiga frábært ár með Napoli í deild og Meistaradeild. Hann er með langan samning við félagið. Markaðurinn er kraftmikill en við viljum vera áfram hjá Napoli og halda áfram að gera vel."


Athugasemdir
banner
banner