þri 18. október 2022 23:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vieira: Áttum ekki skilið að vera undir
Mynd: Getty Images

Patrick Vieira stjóri Crystal Palace var ánægður með endurkomu sigur sinna manna í kvöld.


Liðið var marki undir í hálfleik en Vieira hafði ekki miklar áhyggjur þar sem honum fannst liðið vera spila vel.

„Ég hafði ekki margt að segja í hálfleik. Ég var ánægður með það sem við vorum að reyna að gera. Við vildum spila en það var erfitt því þeir vörðust mjög vel," sagði Vieira.

„Ég var svekktur með að fara inn í hálfleik 1-0 undir því mér fannst við ekki eiga það skilið. Ég vil hrósa leikmönnunum, við komum til baka með frábært viðhorf og sýndum ákveðni."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner