Jason Daði Svanþórsson, leikmaður Breiðabliks, hné niður í leik Breiðabliks og FH fyrr á tímabilinu. Jason var fluttur með sjúkrabíl af vellinum. Næstu mínútur biðu leikmenn og vallargestir eftir tíðindum af Jasoni og í seinni hálfleik bárust jákvæðar fregnir af leikmanninum.
Jason Daði fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gærkvöldi (21. júní)
Jason Daði fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gærkvöldi (21. júní)
Jason lék ekki með gegn Keflavík og HK í leikjunum á eftir en var mættur á völlinn aftur tveimur vikum eftir atvikið. Eftir þann leik spurði fréttaritari Jason hvort hann hefði fengið einhverja niðurstöðu um hvað hefði gerst. Jason sagðist ekki hafa fengið neina niðurstöðu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var spurður út í Jason Daða og atvikið í júní í viðtali eftir leikinn gegn ÍA á mánudag.
„Eruði smeykir um að þetta gerist aftur og vitiði hvað gerðist?" spurði Matthías Freyr Matthíasson, fréttaritari Fótbolta.net.
„Nei, við erum ekki smeykir við það. Ég ætla ekki að fara klæðast einhverjum læknaslopp hér og koma með nákvæma sjúkdómalýsingu. Það er engin hætta en hins vegar þegar eitthvað svona gerist þá tekur ákveðinn tíma að koma til baka af fullum styrk. Við reyndum að koma honum eins rólega inn í þetta og kostur var. Í dag var hann í toppstandi," sagði Óskar eftir leikinn.
Athugasemdir