Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 19. október 2022 20:15
Ívan Guðjón Baldursson
Gaya framlengir við Valencia - Fyrirliði til 2027
Mynd: EPA

Það voru stór tíðindi að berast úr herbúðum Valencia þar sem eftirsótti vinstri bakvörðurinn Jose Luis Gaya var að framlengja samning sinn við félagið til 2027.


Gaya er fyrirliði Valencia og gríðarlega eftirsóttur bakvörður. Það voru margir sem bjuggust við að Gaya myndi yfirgefa Valencia á frjálsri sölu næsta sumar en nú hefur bakvörðurinn bundið enda á þá orðróma.

Valencia missti Goncalo Guedes og Carlos Soler frá sér í sumar eftir að hafa einnig misst Ferran Torres, Rodrigo Moreno og Geoffrey Kondogbia frá sér fyrir tveimur árum.

Valencia er með 15 stig eftir 10 umferðir í spænsku deildinni og hefur Edinson Cavani verið að draga vagninn með þrjú mörk og stoðsendingu í fimm leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner