Brentford tók á móti Chelsea í einum af leikjum kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og niðurstaðan var markalaust jafntefli.
Leikurinn var nokkuð bragðdaufur en bæði lið fengu færi til að skora án þess að takast ætlunarverk sitt.
Amazon Prime ræddi við Thomas Frank og Graham Potter, þjálfara Brentford og Brighton, fyrir upphafsflautið og voru þjálfaranir hressir og enduðu á að taka viðtal við hvorn annan.
Frank spurði Potter hvers vegna hann breyti svona mikið til í byrjunarliðinu sínu á milli leikja og þá spurði Potter á móti hver væri helsti munurinn á milli Championship deildarinnar og úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir