Vinicius Junior verður ekki með Real Madrid gegn Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni í vikunni vegna meiðsla.
Hann meiddist aftan í læri og verður líklega frá fram að áramótum. Margir hafa gagnrýnt aukið leikjaálag og Vinicius bættist í þann hóp eftir að meiðslin komu í ljós.
„Brjálað skipulag, tími til kominn að ná endurheimt," skrifaði Vinicius Junior á X.
Hann mun missa af fimm leikjum í spænsku deildinni og gegn Atalanta í Meistaradeildinni ásamt leiknum gegn Liverpool.
Athugasemdir