fös 19.apr 2019 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net - 1. sæti: Valur
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur muni vinna sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Valur endar í 1. sæti ef spáin rætist.
Spáin:
1. Valur 116 stig
2. KR 110 stig
3. FH 103 stig
4. Breiðablik 90 stig
5. Stjarnan 76 stig
6. ÍA 69 stig
7. KA 65 stig
8. Fylkir 45 stig
9. Grindavík 35 stig
10. ÍBV 34 stig
11. Víkingur R. 25 stig
12. HK 12 stig
Um liðið: Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára mæta til leiks með breytt lið frá síðasta tímabili. Þeir hafa bætt við sig mörgum leikmönnum en á sama tíma hafa þeir misst aðra leikmenn og þar er stærsta nafnið Patrick Pedersen.
Þjálfari – Ólafur Jóhannesson: Ólafur Jóhannesson hefur náð frábærum árangri hjá Val eftir að hann tók við liðinu fyrir fjórum árum. Óli hefur mikla þjálfara reynslu og hefur náð frábærum árangri bæði með Val og FH á sínum tíma.
Styrkleikar: Breiddin og reynslan í liðinu er ógnvæginleg. Þrátt fyrir að hafa misst töluvert úr sínum leikmannahópi í fyrra þá er hópurinn hrikalega öflugur og verður samkeppni um að komast hreinlega í leikmannahóp Vals í sumar. Heimavöllur liðsins hefur reynst þeim vel og í fyrra tapaði liðið ekki leik á heimavelli í deildinni.
Veikleikar: Töluverðar breytingar eru á leikmannahópnum frá því í fyrra og það gæti tekið sinn tíma að púsla saman góðu liði og finna hreinlega besta byrjunarliðið. Eins gæti mórallinn í hópnum sagt til sín þegar leikmenn sem telja sig eiga að spila meira en þeir eru að gera verða óánægðir með sitt hlutverk.
Lykilmenn: Haukur Páll Sigurðsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson. Límið á miðjunni hjá meisturunum síðustu tvö ár og Eiður Aron sem var einn af, ef ekki sá besti í Pepsi-deildinni í fyrra.
Gaman að fylgjast með: Lasse Petry. Kemur til Vals frá Danmörku þar sem hann hefur leikið í dönsku úrvalsdeildinni undanfarin ár með Nordsjælland, alls 93 leiki í Superliga. Spennandi að sjá hvað hann sýnir í sumar.
Spurningamerkið: Er hópurinn of stór? Nær þjálfarateymið að dreifa álaginu og halda öllum góðum?
Völlurinn: Valsmenn leika á gervigrasi og aðstaða félagsins er oðrin frábær og umgjörðin fyrir áhorfendur verður beri betri og betri. Stuðningsmenn hittast í “Fjósinu” fyrir leik og er það orðið að frábærum vettvangi fyrir stuðningsmenn
Þjálfarinn segir – Sigurbjörn Hreiðarsson
„Ég á von á því að okkur verði víða spáð 1. sætinu. Hefur það ekki oft tíðkast að meistarar síðasta árs og hvað þá síðustu tveggja ára eru líklegir til að verða aftur meistarar. Þetta kemur mér ekki á óvart. Auðvitað vill maður breyta liðinu sem minnst þannig lagað. Við höfum fengið mjög öfluga leikmenn en að sama skapi höfum við einnig misst öfluga leikmenn. Hér heima stefnum við á það að viðhalda því sem við höfum gert og vera í toppbaráttu og reyna viðhalda því að vera öflugt lið og gera tilkall til þeirra titla sem í boði eru hér heima á sumrin. Vonandi getum við bætt árangur liðsins í Evrópukeppninni frá því í fyrra og auðvitað skiptir miklu máli hvaða lið við fáum. Ef við erum heppnir við drátt þá erum við reynsluríkari frá því í fyrra og vonandi getum við gert góða hluti þar."
Komnir:
Birnir Snær Ingason frá Fjölni
Emil Lyng frá Haládas
Garðar Bergmann Gunnlaugsson frá ÍA
Gary Martin frá Lilleström
Kaj Leó í Bartalsstovu frá ÍBV
Lasse Petry frá Nordsjælland
Orri Sigurður Ómarsson frá Sarpsborg
Hannes Þór Halldórsson frá Qarabag
Farnir:
Andri Fannar Stefánsson í KA
Guðjón Pétur Lýðsson í KA
Dion Acoff í SJK
Jón Freyr Eyþórsson í KH (á láni)
Patrick Pedersen til Sheriff Tiraspol
Tobias Thomsen í KR
Ásgeir Þór Magnússon í Stjörnuna
Fyrstu fimm leikir Vals:
26. apríl Valur – Víkingur R.
5. maí KA – Valur
11. maí Valur – ÍA
16. maí Fylkir – Valur
20. maí FH - Valur
Sjá einnig:
Leikmenn Vals sumarið 2019:
1 Anton Ari Einarsson
2 Birkir Már Sævarsson
3 Ívar Örn Jónsson
4 Einar Karl Ingvarsson
6 Sebastian Starke Hedlund
7 Haukur Páll Sigurðsson
8 Kristinn Ingi Halldórsson
9 Gary John Martin
10 Kristinn Freyr Sigurðsson
11 Sigurður Egill Lárusson
12 Garðar Bergmann Gunnlaugsson
13 Rasmus Steenberg Christiansen
14 Arnar Sveinn Geirsson
17 Andri Adolphsson
18 Birnir Snær Ingason
19 Lasse Petry Andersen
20 Orri Sigurður Ómarsson
21 Bjarni Ólafur Eiríksson
23 Eiður Aron Sigurbjörnsson
25 Sveinn Sigurður Jóhannesson
28 Emil Sigvardsen Lyng
71 Ólafur Karl Finsen
77 Kaj Leo í Bartalsstovu
Hannes Þór Halldórsson
Sverrir Páll Hjaltested

Athugasemdir