Forgangsatriði fyrir Man Utd að fá Gyökeres - Zirkzee til Aston Villa?
banner
þriðjudagur 19. nóvember
Þjóðadeildin
sunnudagur 17. nóvember
U21 - Vináttuleikur
laugardagur 16. nóvember
Þjóðadeildin
U19 karla - Undank. EM 2025
fimmtudagur 7. nóvember
Sambandsdeildin
þriðjudagur 5. nóvember
Undankeppni EM U17
sunnudagur 27. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 24. október
Vináttulandsleikur
Sambandsdeildin
sunnudagur 20. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 19. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
þriðjudagur 15. október
Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
mánudagur 14. október
Landslið karla - Þjóðadeild
föstudagur 11. október
fimmtudagur 10. október
Undankeppni EM U21 karla
sunnudagur 6. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 5. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 3. október
Sambandsdeild Evrópu
mánudagur 30. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 29. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 27. september
Fótbolti.net bikarinn
miðvikudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 23. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
sunnudagur 22. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Lengjudeildin - Umspil
laugardagur 21. september
Mjólkurbikarinn - Úrslit
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 20. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 18. september
Lengjudeildin - Umspil
mánudagur 16. september
Besta-deild karla
föstudagur 13. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Besta-deild karla
fimmtudagur 12. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
þriðjudagur 10. september
Undankeppni EM U21
Æfingamót í Slóveníu
mánudagur 9. september
Þjóðadeildin
laugardagur 7. september
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild kvenna
Æfingamót U19 karla
föstudagur 6. september
Þjóðadeildin
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 5. september
Æfingamót U19 karla
miðvikudagur 4. september
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
sunnudagur 24. nóvember
Championship
Swansea 3 - 4 Leeds
Úrvalsdeildin
Ipswich Town 1 - 1 Man Utd
Southampton 2 - 3 Liverpool
Super League - Women
Chelsea W 1 - 0 Manchester Utd W
Division 1 - Women
Fleury W 1 - 4 Paris W
Bundesligan
Gladbach 2 - 0 St. Pauli
Holstein Kiel 0 - 3 Mainz
Serie A
Como 0 - 2 Fiorentina
Genoa 2 - 2 Cagliari
Lazio - Bologna - 19:45
Napoli 0 - 0 Roma
Torino 1 - 1 Monza
Serie A - Women
Fiorentina W 2 - 2 Milan W
Sassuolo W 1 - 1 Roma W
Como 2000 W 1 - 3 Juventus W
Úrvalsdeildin
Kr. Sovetov 2 - 1 Akhmat Groznyi
Fakel 1 - 1 Dinamo
Nizhnyi Novgorod 0 - 0 Dynamo Mkh
La Liga
Athletic - Real Sociedad - 20:00
Osasuna 2 - 2 Villarreal
Leganes 0 - 0 Real Madrid
Sevilla 1 - 0 Vallecano
mið 17.apr 2019 16:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 4. sæti: Breiðablik

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik endi í 4. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Breiðablik endar í 4. sæti ef spáin rætist.

Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. Breiðablik 90 stig
5. Stjarnan 76 stig
6. ÍA 69 stig
7. KA 65 stig
8. Fylkir 45 stig
9. Grindavík 35 stig
10. ÍBV 34 stig
11. Víkingur R. 25 stig
12. HK 12 stig

Um liðið: Silfur bæði í deild og bikar hjá Breiðabliki var niðurstaðan í fyrra. Breiðablik endaði tveimur stigum á eftir Val og liðið fékk aðeins 17 mörk á sig í deildinni.

Þjálfari - Ágúst Þór Gylfason: Ágúst Þór er að renna í sitt annað tímabil með Breiðabliki eftir að hafa verið í sex ár með Fjölni. Hann gerði góða hluti bæði með Fjölni og með Breiðabliki á sínu fyrsta ári. Ágúst lék meðal annars með Brann í Noregi á ferli sínum sem leikmaður.

Styrkleikar: Gríðarlega sterkir varnarlega og skeinuhættir fram á við. Fengu lang fæstu mörkin á sig í deildinni í fyrra og halda svipaðri vörn. Verða með Thomas Mikkelsen frá upphafi en hann kom til Blika um mitt sumar í fyrra og var á eldi. Daninn skoraði 10 mörk í 11 leikjum.

Veikleikar: Nokkrir lykilmenn hafa horfið á braut og ljóst að leikmannahópurinn er minni en í fyrra. Vinstri bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson fór í Álasund og það gæti reynst erfitt að fylla skarð hans. Liðið má illa við meiðslum eða leikbönnum hjá lykilmönnum.

Lykilmenn: Thomas Mikkelsen og Damir Muminovic. Daninn var óstöðvandi í sóknarleik Blika seinna hluta síðasta tímabils og nú eru Blikarnir með hann frá upphafi. Damir hefur verið einn besti varnarmaður deildarinnar undanfarin ár og batt saman sterkustu vörn deildarinnar í fyrra.

Gaman að fylgjast með: Það verður fróðlegt að fylgast með Kwame Quee frá Sierra Leóne sem spilað hefur í Ólafsvík undanfarin tvö tímabil og sló í gegn í Inkasso-deildinni síðasta sumar og skoraði 14 mörk í 25 leikjum fyrir Víking Ó.

Spurningamerkið: Hvernig kemur Guðjón Pétur Lýðsson inn í lið Breiðabliks? Hann gekk í raðir liðsins aðeins tveimur vikum fyrir mót en hann gæti verið púsluspilið sem þurfti til að fylla skörð Gísla Eyjólfs og Olivers Sigurjónssonar.

Völlurinn: Eftir að hafa boðið upp á einn flottasta grasvöll landsins leika Blikar á gervigrasi á sínum heimavelli í sumar. Stúkan tekur 1.700 áhorfendur í sæti. Sólin mætti skína oftar í stúkuna en fyrir sólarþyrsta áhorfendur þá er minni stúka hinum megin við völlinn sem er yfirleitt opin þegar sólin skin.

Þjálfarinn segir - Ágúst Þór Gylfason
„Miðað við frammistöðuna í fyrra þá kemur þessi spá mér á óvart í rauninni. Við viljum meira og við höfum sett okkur markmið sjálfir um að gera betur í fyrra og við viljum vinna titil. Við erum bjartsýnir á að þessi hópur sem við erum með geti gert betur en í fyrra. Við höfum misst ákveðna reynlu úr liðinu og karakter en að móti kemur erum við með góða leikmenn og marga unga leikmenn sem eru að stíga upp og verður skemmtilegt að vinna með. Við erum með góða blöndu í hópnum af ungum og óreyndum leikmönnum og síðan eldri og reyndum leikmönnum. Við höfum bætt við okkur fjórum leikmönnum og þeir passa allir mjög vel inn í okkar umhverfi. Þetta verður aðeins öðruvísi lið frá því í fyrra en við ætlum okkur stóra hluti í sumar."

Komnir:
Kwame Quee frá Víkingi Ólafsvík
Viktor Karl Einarsson frá IFK Varnamo
Þórir Guðjónsson frá Fjölni
Guðjón Pétur Lýðsson frá KA

Farnir:
Arnór Gauti Ragnarsson í Fylki
Arnþór Ari Atlason í HK
Davíð Kristján Ólafsson í Álasund
Gísli Eyjólfsson til Mjallby (á láni)
Oliver Sigurjónsson til Bodo/Glimt (var á láni)
Ólafur Íshólm Ólafsson í Fram (á láni)
Willum Þór Willumsson í BATE Borisov
Aron Kári Aðalsteinsson í HK (á láni)

Fyrstu fimm leikir Breiðabliks:
27. apríl Grindavík - Breiðablik
4. maí HK - Breiðablik
11. maí Breiðablik - Víkingur R.
15. maí KA - Breiðablik
19. maí Breiðablik - ÍA

Sjá einnig:
Hin hliðin - Viktor Karl Einarsson
Niðurtalningin: Breiðablik - Brynjólfur Darri og Gulli Gull

Leikmenn Breiðabliks sumarið 2019:
1 Gunnleifur Gunnleifsson
4 Damir Muminovic 
5 Elfar Freyr Helgason
6 Alexander Helgi sigurðarson
7 Jonathan Hendrickx
8 Viktor Einarsson
9 Thomas Mikkelsen
10 Guðjón Pétur Lýðsson
12 Ólafur Íshólm Ólafsson
14 Óskar Jónsson
16 Guðmundur Böðvar Guðjónsson
17 Þórir Guðjónsson
19 Aron Bjarnason
20 Kolbeinn Þórðarson
21 Viktor Örn Margeirsson
22 Karl Friðleifur Gunnarsson
23 Skúli E. Kristjánsson Sigurz
25 Davíð Ingvarsson
29 Gísli Martin Sigurðsson
30 Andri Yeoman
31 Benedikt V Warén
33 Hlynur Örn Hlöðversson
35 Brynjar Óli Bjarnason
36 Aron Kári Aðalsteinsson
37 Ólafur Guðmundsson
38 Bjarni Þór Hafstein
39 Gabríel Þór Stefánsson
40 Gunnar Heimir Ólafsson
41 Ísak Eyþór Guðlaugsson
43 Stefán Ingi Sigurðarson
45 Brynjólfur Darri Willumsson
46 Eiríkur Blöndal
47 Þorbergur Þór Steinarsson
50 Sindri Snær Vilhjálmsson
80 Andri Fannar Baldursson (láni hjá Bologna)
77 Kwame Quee

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Arnar Helgi Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson, Daníel Geir Mortiz, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner