þri 16.apr 2019 10:00 Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson |
|

Spá Fótbolta.net - 7. sæti: KA
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að KA endi í 7. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. KA endar í 7. sæti ef spáin rætist.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. KA 65 stig
8. Fylkir 45 stig
9. Grindavík 35 stig
10. ÍBV 34 stig
11. Víkingur R. 25 stig
12. HK 12 stig
Um liðið: Þjálfarabreytingar hafa orðið fyrir norðan og hefur Óli Stefán tekið við búinu af Tufa. KA er að fara inn í sitt þriðja tímabil í röð í efstu deild en liðið hefur endað í 7. sæti síðustu tvö ár. Miklar hræringar hafa verið á leikmannamarkaðnum en liðið hefur fengið uppalda leikmenn til sín í bland við reynslumiklu leikmenn. Að sama skapi hafa útlendingunum fækkað.
Þjálfari - Óli Stefán Flóventsson: Óli Stefán tekur við KA liðinu eftir að hafa stjórnað Grindvíkingum undanfarin ár og farið með þá upp úr Inkasso-deildinni sumarið 2016. Óli er spennandi þjálfari og fær það verkefni á Akureyri að stíga næsta skref með liðið.
Styrkleikar: Óli Stefán er þekktur fyrir það að vera með skipulagt lið og nái hann því inn í gríðarsterkt lið KA þá gætu KA verið til alls líklegir. Mikil einstaklingsgæði eru í leikmannahópnum. Mikill metnaður er hjá félaginu og stemningin mikil hjá stuðningsmönnunum. Breiddin í varnarleiknum er mikil og þar má meðal annars finna Hallgrím Jónasson og Hauk Heiðar Hauksson sem voru báðir í íslenska landsliðshópnum fyrir ekki svo löngu síðan.
Veikleikar: Meiðsli lykilmanna gætu haft áhrif og auðvitað tekur það tíma fyrir nýjan þjálfara að koma inn með sínar áherslur. Fjórir til fimm byrjunarliðsmenn frá því í fyrra eru horfnir á braut auk þess sem markahæsti leikmaður liðsins í fyrra, Ásgeir Sigurgeirsson sleit krossband í lok september. KA ætlar einnig að treysta á ungan og efnilegan markvörð hjá sér í sumar sem gæti reynst dýrkeypt á mikilvægum tímapunkti. KA þarf að ná í fleiri stig á útivelli heldur í fyrra þegar liðið náði aðeins í níu stig á útivelli.
Lykilmenn: Elfar Árni Aðalsteinsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson. Elfar Árni þarf að taka við keflinu af Ásgeiri Sigurgeirssyni og halda áfram að raða inn mörkum líkt og hann gerði í Lengjubikarnum. Þeir þurfa hinsvegar fleiri en fimm mörk frá honum líkt og síðasta sumar. Hallgrímur Mar er einn af betri leikmönnum deildarinnar og hefur verið drjúgur fyrir liðið undanfarin ár. Hann þarf að eiga topp tímabil í sumar.
Gaman að fylgjast með: Daníel Hafsteinsson. Einn efnilegasti leikmaður deildarinnar kom á sjónarsviðið í Pepsi-deildinni í fyrra og nú verður meiri athygli á honum í sumar. Það verður gaman að fylgjast með þessum tvítuga pilti í sumar.
Spurningamerkið: Stærsta áhyggjuefnið er hvort að lykilmenn haldist heilir hjá KA í sumar og hvernig nýju leikmennirnir passa inn í hugmyndafræði hjá nýjum þjálfara. Svo verður áhugavert að sjá hvernig Óli Stefán fyllir skarð Guðjóns Péturs Lýðssonar sem fór óvænt í Breiðablik tveimur vikum fyrir mót. Guðjóni var ætlað mjög stórt hlutverk í liði KA í sumar en er horfinn á braut.
Völlurinn: KA spilar heimaleiki sína á Akureyrarvelli sem er með stúku fyrir 715 manns í sæti. Félagið vonaðist til að geta spilað heimaleiki sína á gervigrasvellinum við félagssvæði KA en það gekk ekki upp. Þetta gæti orðið síðasta sumar KA á Akureyrarvellinum.
Þjálfarinn segir - Óli Stefán Flóventsson
„Þetta kemur mér ekki á óvart. Það eru mikið af breytingum hjá KA bæði nýtt þjálfarateymi og mikið af nýjum leikmönnum. Margir af burðarásum liðsins eru farnir frá síðasta tímabili. Okkar markmið og mitt markmið sérstaklega hefur alltaf verið þannig að ég vill gera betur en árið áður og það helst óbreytt. Við erum með stóran og góðan hóp með blöndu af ungum og eldri KA-mönnum og svo reyndari leikmönnum og við erum ánægðir með hópinn."
Komnir:
Alexander Groven frá Hönefoss
Almarr Ormarson frá Fjölni
Andri Fannar Stefánsson frá Val
Nökkvi Þeyr Þórisson frá Dalvík/Reyni
Haukur Heiðar Hauksson frá AIK
Torfi Tímoteus frá Fjölni
Þorri Mar Þórisson frá Dalvík/Reyni
Farnir:
Aleksander Trninic til Kúveit
Archange Nkumu til Karingey Borough
Bjarni Mark Antonsson til Brage
Cristian Marintez í Víði Garði
Guðmann Þórisson í FH
Milan Joksimovic í Gorodeya
Vladimir Tufegdzic í Grindavík
Kominn og farinn:
Guðjón Pétur Lýðsson kom frá Val og fór í Breiðablik
Fyrstu fimm leikir KA:
27. apríl ÍA - KA
5. maí KA - Valur
11. maí FH - KA
15. maí KA - Breiðablik
19. maí Stjarnan - KA
Sjá einnig:
Hin hliðin - Daníel Hafsteinsson
Niðurtalningin: KA - Torfi Tímoteus og Almarr
Leikmenn KA sumarið 2019:
1 Andri Snær Sævarsson
2 Angantýr Máni Gautason
3 Aron Dagur Jóhannsson
4 Aron Elí Gíslason
5 Áki Sölvason
6 Ásgeir Sigurgeirsson
7 Bjarni Aðalsteinsson
8 Brynjar Ingi Bjarnason
9 Callum Williams
10 Daníel Hafsteinsson
11 Elfar Árni Aðalsteinsson
12 Hallgrímur Jónasson
13 Hallgrímur Mar Steingrímsson
14 Hrannar Björn Steingrímsson
15 Ívar Örn Árnason
16 Ólafur Aron Pétursson
17 Steinþór Freyr Þorsteinsson
18 Sæþór Olgeirsson
19 Tómas Veigar Eiríksson
20 Ýmir Már Geirsson
21 Haukur Heiðar Hauksson
22 Andri Fannar Stefánsson
24 Alexander Groven
25 Torfi Tímoteus Gunnarsson
26 Baldvin Ólafsson
27 Almarr Ormarsson
28 Nökkvi Þeyr Þórisson
29 Þorri Mar Þórisson
30 Ottó Björn Óðinsson
31 Birgir Baldvinsson
Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Arnar Helgi Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson, Daníel Geir Mortiz, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Tómas Þór Þórðarson

Athugasemdir