Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. janúar 2023 21:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bernardo Silva hlustar á spennandi tilboð
Mynd: EPA

Mikið var rætt og ritað um framtíð Bernardo Silva hjá Manchester City í sumar og hann virtist vera á leiðinni til Barcelona en fjárhagsvandræði spænska félagsins komu í veg fyrir það.


Silva var opinn fyrir því að fara til Barcelona í sumar en í nýju viðtali segir hann frá því að hann sé opinn fyrir því að fara frá City ef eitthvað spennandi tilboð kemur.

„Ég er 28 ára gamall og ég verð 29 í sumar. Ég á tvö ár eftir af samningi mínum hjá Manchester City. Ég verð 31 árs þegar honum lýkur og ég ætla ekki að fela markmiðin mín á næstu árum, ef eitthvað spennandi kemur upp annarsstaðar mun ég örugglega færa mig um set," sagði Silva í samtali við Record.

Silva gekk til liðs við City frá Benfica árið 2017 og hefur spilað 275 leiki, skorað 50 mörk og lagt upp 56 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner