Atalanta er að fá Nicolo Zaniolo frá tyrkneska félaginu Galatasaray en þetta herma heimildir Sky á Ítalíu.
Zaniolo, sem er uppalinn í Fiorentina, hefur verið á mála hjá Galatasaray síðasta eina og hálfa árið.
Á síðustu leiktíð eyddi hann tímabilinu á láni hjá Aston Villa en snéri aftur til tyrkneska félagsins í sumar.
Sky segir að hann staldri stutt við þar en hann er á leið til Atalanta á Ítalíu.
Atalanta mun fá hann á láni út tímabilið og greiðir það Galatasaray þrjár milljónir punda fyrir lánsdvölina.
Ef Zaniolo spilar 60 prósent leikja Atalanta þá mun það kaupa hann fyrir 13,5 milljónir punda.
Athugasemdir