Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. nóvember 2022 18:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Arsenal og West Ham: Nelson fær tækifæri - Tveir ungir hjá West Ham byrja
Reiss Nelson
Reiss Nelson
Mynd: EPA

Arsenal þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn Zurich til að tryggja sér toppsætið í riðlinum. PSV er tveimur stigum á eftir Arsenal og mætir Bodö/Glimt. Alfons Sampsted er að vanda í byrjunarliðið Bodö.


Reiss Nelson kom sterkur inn á gegn Nottingham um helgina en hann fær tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld með Jesus og Nketiah í fremstu víglínu. Aaron Ramsdale er áfram í markinu vegna meiðsla Matt Turner.

West Ham hefur þegar tryggt sér toppsætið í B riðli Sambandsdeildarinnar en liðið mtæir botnliði Steaua í kvöld. Hinn 16 ára gamli Oliver Scarles byrjar sinn fyrsta leik fyrir West Ham, einnig hinn 18 ára gamli Divin Mubama.

West Ham: Areola, Coufal, Johnson, Ogbonna, Aguerd, Lanzini, Coventry, Downes, Scarles, Mubama, Fornals.

Arsenal: Ramsdale, White, Holding, Gabriel, Tierney, Vieira, Elneny, Lokonga, Nelson, Jesus, Nketiah.

Stefán Teitur Þórðarson er í byrjunarliði Silkeborg sem fær Anderlecht í heimsókn. Silkeborg dugir stig til að komast áfram.


Athugasemdir
banner
banner