fim 03. nóvember 2022 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Manchester United: Martinez bestur - Garnacho fær sjö
Mynd: EPA

Manchester United vann Real Sociedad 1-0 en hinn ungi Alejandro Garnacho skoraði eina mark leiksins. Hann fær sjö í einkunn hjá Sky Sports ásamt sjö öðrum leikmönnum liðsins.


United þurfti að vinna með tveimur mörkum til að vinna riðilinn en liðið synnti mikilli varnarvinnu í kvöld. Lisandro Martinez er valinn maður leiksins hjá Sky Sports.

Man Utd: De Gea (7), Dalot (7), Lindelof (7), Martinez (7), Shaw (6), Casemiro (7), Eriksen (6), Fernandes (7), Van de Beek (6), Garnacho (7), Ronaldo (6).

Varamenn: Rashford (6), McTominay (6), Fred (n/a), Maguire (n/a).


Athugasemdir
banner
banner
banner