Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. nóvember 2022 20:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lukkudýr Real Sociedad fagnaði að hætti Ronaldo
Mynd: EPA

Real Sociedad er komið í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar þrátt fyrir tap gegn Manchester United á heimavelli í kvöld.


Hinn ungi Alejandro Garnacho skoraði eina markið en United þurfti tveggja marka sigur til að tryggja sér toppsætið.

Cristiano Ronaldo lagði upp markið en lukkudýr Real Sociedad stal senuninni í lok leiksins þegar það fagnaði toppsætinu með stuðningsmönnum liðsins.

Lukkudýrið gerði fagn sem Ronaldo er þekktur fyrir að taka og áhorfendur taka undir og öskra 'suii'. Lukkudýrið gerði það með stuðningsmönnum spænska liðsins en það má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner