Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 03. nóvember 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Man Utd án Antony, Sancho og Martial á Spáni
Jadon Sancho er veikur.
Jadon Sancho er veikur.
Mynd: Getty Images
Klukkan 17:45 hefst leikur Real Sociedad og Manchester United á Spáni í lokaumferð E-riðils Evrópudeildarinnar. United vinnur riðilinn ef liðið nær sigri með tveggja marka mun eða meira.

Liðið sem vinnur riðilinn kemst beint í 16-liða úrslit en liðið í öðru sæti fer í umspil í febrúar.

Sóknarleikmennirnir Antony, Jadon Sancho og Anthony Martial ferðuðust ekki með United til Spánar.

Antony er enn að jafna sig af meiðslum, Sancho er veikur og Martial hefur ekki spilað síðan 9. október vegna meiðsla.

Cristiano Ronaldo verður væntanlega í byrjunarliðinu gegn Real Sociedad en spænska liðið er með þremur stigum meira en United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner