Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 03. nóvember 2022 23:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes ánægður með ungu strákana - „Þetta er rétt að byrja"
Mynd: EPA

Oliver Scarles og Divin Mubama spiluðu sinn fyrsta leik fyrir West Ham í kvöld þegar liðið lagði Steaua 3-1 í Sambandsdeildinni.


Mubama átti stórann þátt í fyrsta marki leiksins þegar hann skallaði boltann í varnarmann Steaua og í netið. Scarles átti einnig stórann þátt í síðasta marki leiksins sem Pablo Fornals skoraði.

„Þeir spiluðu báðir mjög vel. Scarles var stórkostlegur, hann bjó til og fékk nokkur færi. Hann bjó til frábært færi fyrir Mubama í fyrri hálfleik. Hann er að eins 16 ára svo hann á eftir margt ólært en þetta er góð byrjun fyrir hann," sagði David Moyes stjóri West Ham eftir leikinn.

„Mubama lagði hart að sér. Maður sá hvað það þýddi fyrir hann að skora þó markið sé víst sjálfsmark en þú gast séð hversu mikið hann vildi fagna markinu með stuðningsmönnunum. Þegar þú ert framherji er vinnan þín að skora, hann klikkaði á frábæru færi í fyrri en það var gott að hann fékk annað tækifæri í síðari hálfleik," sagði Moyes um Divin Mubama.

„Ef þeir halda að þetta sé endastöðin, þetta er rétt að byrja. Þeir verða að byrja einhversstaðar."


Athugasemdir
banner
banner
banner