Manchester United er marki yfir gegn Real Sociedad í Evrópudeildinni en það var ungstirnið Alejandro Garnacho sem skoraði markið.
Þetta er annar leikurinn sem hann byrjar fyrir United en þetta er hans fyrsta mark fyrir félagið.
Markið kom eftir rúmlega stundarfjórðung en það var Cristiano Ronaldo sem lagði upp markið með glæsilegri sendingu.
United þarf annað mark til að enda á toppnum í riðlinum en liðin eru jöfn að stigum í tveimur efstu sætunum.
Athugasemdir