Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 03. nóvember 2022 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tierney: Stjórinn veit að ég legg mig alltaf 100% fram
Mynd: EPA

Kieran Tierney var hetja Arsenal í 1-0 sigri liðsins gegn Zurich í Evrópudeildinni í kvöld.


Tierney varð fyrir smá meiðslum í leiknum en hann segir að þau séu ekki alvarleg og hann verði klár í slaginn um helgina.

Hann hefur verið að berjast um sæti í liðinu við Oleksandr Zinchenko en Úkraínumaðurinn hefur verið meiddur að undanförnu og Tierney hefur nýtt tækifærið vel.

„Ég vil spila alla leiki en ég mun halda áfram að æfa vel. Stjórinn veit að ég mun leggja mig 100% fram í verkefnið í hvert sinn sem ég byrja," sagði Tierney eftir sigurinn í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner