Atalanta fær Napoli í heimsókn í stórleik helgarinnar á Ítalíu en leikurinn fer fram á morgun. Um er að ræða toppslag þar sem Napoli er með fimm stiga forskot á Atalanta.
Það eru skörð hoggin í lið Napoli þar sem Khvicha Kvaratskhelia ferðaðist ekki með liðinu vegna bakmeiðsla.
Þetta verður aðeins annar leikurinn sem hann missir af á tímabilinu en sá fyrsti vegna meiðsla.
Þessi 21 árs gamli Georgíumaður gekk til liðs við félagið frá Dinamo Batumi í heimalandinu í sumar en hann fór þangað frá Rubin Kazan eftir innrás Rússlands til Úkraínu.
Hann hefur skorað átta mörk og er með tíu stoðsendingar í 17 leikjum í deild og Meistaradeild á tímabilinu.
Athugasemdir