Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. nóvember 2022 22:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski og Busquets hrósa Pique - „Besti miðvörður liðsins frá upphafi"
Mynd: EPA

Robert Lewandowski og Sergio Busquets töluðu um Gerard Pique á æfingasvæði félagsins í kvöld.


Pique mun leggja skóna á hilluna annað kvöld en Lewandowski á honum mikið að þakka fyrir að hjápla framherjanum að aðlagast félaginu.

„Pique er ekki bara goðsögn innan félagsins heldur sem leikmaður og manneskja. Ég man eftir því hvernig var að spila á móti honum, við börðumst mikið og það var mikil áskorun fyrir mig. Nú sem liðsfélagar get ég sagt að hann sé frábær einstaklingur, ekki bara leikmaður sem hefur unnið allt sem hægt er að vinna," sagði Lewandowski.

Busquets og Pique voru samherjar hjá Barcelona sem var ógnarsterkt hér fyrir nokkrum árum síðan.

„Ég er sorgmæddur, hann skiptir félagið og mig miklu máli. Við komum hingað báðir fyrir 15 árum síðan og höfum afrekað mikið saman hjá félaginu. Við munum sakna hans mikið, ekki bara af því hann er besti miðvörður í sögu Barcelona heldur var hann hluti af liði sem gerði Barcelona svo sigursælt, fann fullt af titlum," sagði Busquets.


Athugasemdir
banner
banner
banner