Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. nóvember 2022 21:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd sýndi Almiron áhuga
Mynd: EPA

Miguel Almiron fór hamförum með Newcastle í október en hann skorað þá sex mörk í sex leikjum. Liðið vann fimm leiki en gerði jafntefli gegn Manchester United.


Daniel Campos, umboðsmaður Almiron segir að United hafi sýnt leikmanninum áhuga áður.

„Það var áhugi frá Manchester United en þeir gerðu aldrei tilboð. Arsenal og Southampton vildu fá hann á láni en við vildum ekki gera lánssamning," sagði Campos.

Newcastle gerði markalaust jafntefli við United í október og var það því eini leikurinn sem honum mistókst að skora í.


Athugasemdir
banner
banner