Cole Palmer er ekki í 25 manna leikmannahópi Chelsea sem félagið hefur skilað inn fyrir Sambandsdeildina.
Chelsea gæti spilað um 80 leiki á þessu tímabili, í fimm keppnum. Enzo Maresca ákvað að hvíla Palmer í deildarleikjum Sambandsdeildarinnar og setti nafn hans því ekki í Evrópuhópinn.
Líkt og með Palmer þá eru miðjumennirnir Romeo Lavia og varnarmaðurinn Wesley Fofana ekki í hópnum til að minnka álagið á þá. Báðir hafa verið að glíma við erfið meiðsli.
Einnig er Ben Chilwell utan hópsins en hann er ekki í framtíðaráætlunum Maresca. Ólíklegt er að hann spili fyrir Chelsea á þessu tímabili og hann hefur verið orðaður við tyrknesk félög, þar sem glugginn er enn opinn.

Chelsea skilar svo inn uppfærslu á Evrópuhópnum fyrir útrláttarkeppnina svo möguleiki er á því að Palmer, Lavia og Fofana komi þá inn.
Athugasemdir