Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. nóvember 2022 15:45
Aksentije Milisic
Alisson: Er í besta formi lífs míns
Mynd: EPA

Alisson Becker, markvörður Liverpool, segir að hann sé besta formi lífs hans til þessa en hann hefur staðið sig frábærlega í markinu hjá Liverpool en liðið hefur verið að ströggla á þessari leiktíð.


Í síðasta mánuði hélt Alisson fjórum sinnum hreinu í níu leikjum og þá varði hann vítaspyrnu frá Jarrod Bowen sem tryggði Liverpool stigin þrjú gegn West Ham.

„Þetta er mjög gott og skemmtilegt að heyra þegar fólk sér hvað maður er að gera á vellinum. Eins líður mér vel með það að ég sé að leggja mitt af mörkum til að ná árangri með liðinu," sagði Brassinn.

„Ég geri alltaf mitt besta til að hjálpa liðinu að ná í þau úrslit sem þarf. Það hefur ekki alltaf gengið upp hjá okkur."

„Ég er minn helsti gagnrýnandi. Ég veit þegar ég stend mig vel en ég passa að hrósa mér ekki alltof mikið. Eins þegar ég geri mistök, þá held ég haus og horfi fram á veginn."

Alisson var spurður að því hvort hann væri í besta formi lífs síns til þessa.

„Hingað til, já, það gæti vel verið," sagði markvörðurinn öflugi.


Athugasemdir
banner