Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 05. nóvember 2022 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grikkland: Sverrir Ingi skoraði í góðum sigri - Viðar Örn kom inn á
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Ingi Ingason var á skotskónum í dag fyrir PAOK í grísku deildinni þegar liðið tók á móti Giannina.


Hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri liðsins á 8. mínútu en það síðara kom aðeins tveimur mínútum síðar. Þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu.

PAOK er í 5. sæti með 19 stig eftir 11 leiki en efstu sex liðin fara í úrslitakeppni.

Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður í liði Crete í 2-0 tapi liðsins gegn Ionikos. Crete er í næst neðsta sæti deildarinnar með 7 stig. Þá kom Viðar Örn Kjartansson við sögu í markalausu jafntefli Atromitos gegn Aris en Samúel Friðjónsson sat allan tímann á bekknum.

Artomitos er í 8. sæti með 12 stig.


Athugasemdir
banner
banner