Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 21:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: Leno er ótrúlegur vítabani
Leno var nálægt því að verja
Leno var nálægt því að verja
Mynd: Getty Images

Pep Guardiola stjóri Manchester City var gríðarlega stoltur af sínu liði sem vann Fulham í dag manni færri meiri hlutann af leiknum. Joao Cancelo var rekinn af velli með rautt spjald eftir 25 mínútna leik.


„Allir voru frábærir, að spila 65 mínútur gegn Fulham með tíu leikmenn. Við spiluðum vel," sagði Guardiola.

Erling Haaland var hetja liðsins en hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Bernd Leno markvörður Fulham var í boltanum.

„Hann sparkaði fast í boltann, markmaðurinn þeirra er ótrúlegur vítabani en að lokum var þetta okkur í hag," sagði Guardiola.


Athugasemdir
banner
banner
banner