Bolton mætti Barnsley í FA Bikarnum í dag á heimavelli en bæði lið eru í League One deildinni.
Jón Daði Böðvarsson komst á blað í leiknum en hann skoraði á 80. mínútu leiksins og minnkaði muninn í 1-2. Gestirnir höfðu leitt leikinn með tveimur mörkum gegn engu frá 33. mínútu.
Lokatölur 1-2 og Bolton er því dottið úr FA bikarnum á þessari leiktíð.
Liðið situr í sjötta sæti League One deildarinnar þegar sextán umferðir eru búnar en Barnsley er í því áttunda.
Athugasemdir