Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Muller vonandi klár í slaginn um næstu helgi
Mynd: EPA

Thomas Muller leikmaður Bayern Munchen hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna mjaðmameiðsla.


Hann mun missa af næstu tveimur leikjum liðsins en samkvæmt þýska miðlinum Kicker verður hann klár í slaginn um næstu helgi þegar liðið mætir botnliði Schalke.

Muller hefur ekki misst af mörgum leikjum vegna meiðsla í gegnum tíðina en hann hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli að undanförnu og hann hefur einnig verið frá vegna veikinda.

Bayern er í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Union Berlin en Bayern mætir Hertha Berlin í dag og Werder Bremen á þriðjudaginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner