Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 22:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pique: Ég fæddist hérna og ég mun deyja hérna
Tilfinninga þrungin stund á Camp Nou í kvöld
Tilfinninga þrungin stund á Camp Nou í kvöld
Mynd: EPA

Gerard Pique lék sinn síðasta leik á ferlinum í kvöld þegar Barcelona lagði Almeria 2-0 í spænsku deildinni.


Hann sá að hlutverk hans á vellinum var farið að minnka og honum fannst tímabært að leggja skóna á hilluna. Það væri rétt fyrir hann sjálfann og félagið.

„Ég er handviss um að ég komi aftur í framtíðinni, ég elska Barcelona þess vegna tel ég þetta rétta tímann til að fara. Þetta er ekki kveðjustund, ég fæddist hér og ég mun deyja hér," sagði Pique eftir leikinn í kvöld.

Pique lék 667 leiki á ferlinum, þar af 23 leiki með Manchester United og 28 leiki með Real Zaragoza á láni. Hann lék einnig 102 landsleiki fyrir Spán á árunum 2009-2018.


Athugasemdir
banner