Þessa stundina er leikur Manchester City og Fulham í gangi en staðan er 1-1 þegar þetta er skrifað.
Heimamenn eru einum færri en Joao Cancelo, bakvörður Manchester City, fékk beint rautt spjald á 26. mínútu leiksins þegar hann braut á Harry Wilson innan vítateigs.
Fulham fékk vítaspyrnu og steig Andreas Pereira á punktinn og skoraði af miklu öryggi.
Erling Haaland er á varamannabekknum hjá Man City ásamt Phil Foden en það er spurning hvort Pep Guardiola muni setja þá inn á fljótlega.
Hérna má sjá dóminn og einnig vítaspyrnuna hjá Pereira.
Athugasemdir