Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stórkostlegt mark hjá Giroud - „Minnti mig á Totti"
Mynd: EPA

Olivier Giroud var hetja AC Milan þegar liðið lagði Spezia í ítölsku deildinni í kvöld.


Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Markið var stórglæsilegt en hann fékk sendingu fyrir og negldi boltanum í netið með fyrstu snertingu á lofti.

Stefano Pioli stjóri AC Milan var ánægður með þetta mark.

„Frábær sending frá Tonali og enn betra mark hjá Giroud. Þetta minnti mig á Francesco Totti sem hann skoraði með Roma gegn Lazio þegar ég var hjá Lazio. Við vorum 2-0 yfir og það endaði 2-2, það kom fyrst upp í hugann," sagði Pioli.


Athugasemdir
banner
banner
banner