Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 18. október 2022 17:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Brighton og Nottingham Forest: Lallana kemur inn í liðið
Adam Lallana
Adam Lallana
Mynd: Getty

Það er umferð í enska boltanum næstu þrjá daga en hún hefst á leik Brighton og Nottingham Forest sem hefst kl 18:30.


Byrjunarliðin eru komin í hús en Roberto De Zerbi gerir aðeins eina breytingu á liðinu sem tapaði gegn Brentford í síðustu umferð. Adam Lallana kemur inn í liðið fyrir Pervis Estupinan.

Það þýðir væntanlega að Solly March fari í bakvörðinn.

Það eru þrjár breytingar á Forest liðinu sem tapaði gegn Wolves. esse Lingard, Orel Mangala og Serge Aurier koma inn í liðið fyrir Harry Toffolo, Cheick Kouyate og Emmanuel Dennis.

Brighton: Sanchez, Veltman, Dunk, Webster, March, Mac Allister, Caicedo, Lallana, Gross, Welbeck, Trossard

Forest: Henderson, Williams, Cook, McKenna, Aurier, Freuler, Yates, Mangala, Lingard, Johnson, Gibbs-White


Athugasemdir
banner
banner