Genoa 1-0 Spal
1-0 Albert Guðmundsson ('45)
Albert Guðmundsson var hetja Genoa í ítalska bikarnum í dag.
Genoa tók á móti Spal í 32 liða úrslitum keppninnar en leiknum lauk með 1-0 sigri Genoa. Albert skoraði markið af vítapunktinum í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Stóru liðin koma inn í 16 liða úrslitin en Genoa fær stórt próf þar. Liðið heimsækir Jose Mourinho og lærisveina hans í Roma.
Albert er kominn með þrjú mörk í tveimur leikjum í bikarnum en hann skoraði tvö mörk í 3-2 sigri liðsins á Benevento í síðustu umferð.
Athugasemdir